Hólmfríður
07.09.2010 19:26:59 / holmfridur-heppna

Halló halló

halló! Vá, mikið rosalega er langt síðan ég bloggaði síðast!
En það skiptir ekki máli fyrst ég er að því núna. Ég fæ spöng í efri góm á föstudaginn.
''Mikið hlakka ég til'' eða þannig. Svo er ég að fara á þriðjudaginn eftir viku í Flexor að láta smíða ný innlegg handa mér. Gömlu eru löngu orðin of lítil. En ég er komin með einhverja sýkingu eða eitthvað í ennisholurnar. Hef verið illt í höfðinu og hálsinum mjög lengi. Svo fór ég til læknis fyrir rúmlega þrem vikum og fékk nefúða sem ég átti að nota í þrjár vikur. Hann virkaði mjög vel, viku eftir að ég byrjaði að nota hann hætti mér að vera illt í hálsinum og höfðinu. En svo um leið og ég hætti fór mig að vera aftur illt og ekkert minna. Þá fór ég í gær til læknis aftur (ekki sama) og hann sendi mig í röntgen í Domus Medica til að athuga hvort það væri sýking eða eitthvað svoleiðis í ennisholunum. Í morgun fór ég í röntgen og svo fórum við með niðurstöðurnar í lokuðu umslagi til læknisins (sem sendi mig í röntgen). Svo hringdi hann í pabba í dag. Pabbi sagði mér það svo þegar hann kom heim. Ég er semsagt með sýkingu og þarf að taka 1 töflu 3x á dag með mat. Morgunmat, hádegismat, og kvöldmat. 
Þá endar vonandi þetta verkjavesen.
Bæjj 

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2010 16:51:35 / holmfridur-heppna

17. júní!!

Halló, halló!! Í dag er 17. júní. Ég er ekkert farin niður í bæ ennþá, ætla að minnsta kosti í kvöld.
Kannski verður Geir Ólafs þarna, ég vona það. Hann ætlaði allavega kannski að syngja í fyrra, en ég var ekki heima þá.
Svo á ég afmæli á sunnudaginn, 13 ára. :D

BLESS

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2010 16:05:16 / holmfridur-heppna

4 daga fríí!! Jibbíí!

Núna er hvítasunnuhelgin að byrja og enginn skóli fyrr en á miðvikudag. :haha:
Æðislega verður þægilegt að fá að sofa út maður.
Dúllan hann Ingólfur kemur á eftir og verður hér þangað til á sunnudag (eða mánudag).
Þess vegna ákvað ég að vera ekkert að fara í afmælið hjá Alex.
Vera bara heima þegar Ingólfur kemur og éta heimabakaða pizzu. :)

BLESS

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2010 20:59:29 / holmfridur-heppna

Halló

Ef einhver hefur kíkt í gestabókina mína þá eru þar nokkur komment frá strák sem heitir Ingólfur. Er hann ekki mikil dúlla?! Gestabókarfærslurnar eru svo krúttlegar!!!:)
Hann er dúlla. Eins og hann Tumi minn sem liggur í litla bælinu sínu með stóru, svörtu eyrun sín sperrt og horfir fram á gang. Sætu strákarnir mínir. :D

Bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2010 20:24:46 / holmfridur-heppna

Ýmislegt

Bráðum eru próf í píanóinu. Reyndar er prófið á föstudaginn.Ég ætti þess vegna að vera að æfa mig núna en ekki blogga. Ég fór í fermingarveislu um helgina hjá frænda mínum sem er hálfu ári eldri. Hann fæddist i desember 1996 og ég 7 mánuðum seinna.

Ég er frekar aum í hálsinum núna. Ég get ekki sungið eða öskrað því þá kemur ekkert annað hljóð upp úr mér en lágt ískur. Svo hósta ég dáldið líka. Um daginn ætlaði ég að fá mér banana og var að reyna að kyngja bitanum en það mistókst alltaf og ég var að kyngja í fjórða eða fimmta skiptið þegar það loksins tókst. Ég er líka ótrúlega mikill klaufi. Ég get klúðrað því einfalda verkefni að drekka vatn eða einhvern drykk. Einhvern veginn kyngi ég vitlaust og svelgist á og fæ hóstakast. :s
Svo er ég líka alltaf að meiða mig. Í gær tókst mér að rífa mig þrisvar sinnum svo það blæddi og í dag náði ég að hella sjóðheitu vatni úr núðlunum á hendina á mér. Það hefur gerst áður og í þetta skipti gleymdi ég líka að kæla. :^) hehe... Ég gæti talið endalaust upp skipti sem ég hef meitt mig út af klaufaskapnum í mér.

Á morgun er sumardagurinn fyrsti og frí frá skólanum. :D
Bless bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2010 23:29:02 / holmfridur-heppna

án flatfótarins?

Ég fór að velta fyrir mér hvernig það væri að vera ekki með flatfót (það heitir ilsig eða plattfótur en ég kalla það flatfót). Frábært auðvitað. :d Ég gæti æft skauta því ég væri ekki með jafnvægis vandamál. Ég þyrfti ekki að vera með innlegg, ekki að fara í sjúkraþjálfun, ég fengi ekki beinhimnubólgu... og ég gæti talið endalaust upp. Oh, minnir mig á daglegu æfingarnar sem ég á eftir að gera og að æfa á píanóið! Á ég virkilega að taka próf í píanóinu!
Hvað þarf ég að kunna? 5 tónstiga, brotna hljóma, lögin mín, annað lagið hratt. Píanókennarinn minn svaka ánægður út af framförum en satt að segja er ég ekkert ofboðslega dugleg að æfa mig heima...:lol: Já, ætli ég fari þá ekki að æfa mig...

Bless!

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2010 22:54:56 / holmfridur-heppna

Gott kvöld :)

Ég kom frá Ragnheiði og Ingólfi fyrir stuttu. Eyddi kvöldinu með þeim meðan litla systir hélt partý fyrir allar litlu vinkonurnar sínar. Það var geggjað. :d

Þetta blogg á ekki að vera langt en mér datt í hug að setja nokkrar litlar línur inn á síðuna mína samt.
Ég fór að lesa bók með sögum sem systkini fatlaðra barna hafa skrifað. Ekki beint sögur heldur skrifa um hvernig það er að eiga fatlað systkin. Ég fór að pæla hvernig það væri ef systkini geðsjúkra myndu vera beðin um að gera svona. Það yrði örugglega ekkert merkilegt en samt...

Jæja, Bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2010 22:09:33 / holmfridur-heppna

Upprifjun

Ef einhver er að lesa í fyrsta skipti eða er búinn að gleyma hver ég er þá er smá upprifjun. Ég er Hólmfríður, 12 ára stelpa sem býr á Jörðinni, á Íslandi. Ég er hávaxin, með flatfót og er nýbyrjuð í sjúkraþjálfun í annað skiptið á ævinni út af því. Ég er alveg evrópsk ekki dóttir innflytjanda frá Ameríku eða Asíu eða eitthvað. Og ég á frábæra vini. :)

Við fengum á dögunum póstkort frá Kaliforníu með mynd af nýfæddum litlum frænda. Ég hafði ekki hugmynd um hvaða fólk þetta væri fyrr en mamma sagði mér frá því. Ég á fullt af frændfólki í Ameríku. En svo er eftir rúma viku eignast ég annað lítið frændsystkin. Hér á Íslandi. Lítil frænka kemur þá.

Bless


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2010 18:15:43 / holmfridur-heppna

Halló!!

Hæ, hvað segir fólkið? Ég segi bara allt í lagi...þó ég sé frekar aum í handleggnum núna. Ég fór í sprautu í dag í skólanum. Það var frekar sárt. Áts.

En annars er ég bara í góðu lagi.  Bráðum koma próf í píanóinu. Maður þarf að vera vel undirbúinn þar. Jæja, mig langar ekki að skrifa meir.

Bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2009 19:53:53 / holmfridur-heppna

jól eftir viku!!

Jólin byrja eftir viku!! Ég hlakka til. Á morgun er síðasti dagurinn í skólanum, get ekki beðið eftir að hann er búinn. Jólatréð verður sett upp um helgina og skreytt og allskonar. Ég fór á jólaball með 3 systrum og frænda og (stjúp)frænku. Það var líka jólaball í félagsmiðstöðinni í skólanum en ég fór samt á þetta. Mig langaði að hitta familíuna frekar. ;)

Bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2009 14:50:06 / holmfridur-heppna

bara að henda inn smá bloggi ;)

Er bara að henda inn smá færslu, ég má eiginlega ekki vera að því en samt. Ég þarf að læra ótrúlega mikið af því ég hef verið upptekin og dáldið löt við það undanfarið. Ég fór með Maríu minni í Kringluna á sunnudaginn. Við skemmtum okkur rosa vel, keyptum ís, kíktum aðeins inn í Tiger og fórum í ljósmyndaklefa eða eitthvað svoleiðis og létum taka myndir af okkur. Svo sótti mamma hennar okkur og við fórum aðeins í búð en svo á Metro og eftir það keyptum við annan ís og svo heim. Það var ótrúlega gaman. Jæja verð að læra!

Hólmfríður <3

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2009 19:36:34 / holmfridur-heppna

HÆ, AFTUR!!!!

Núna er þessi síða fyrir þá sem mega ekki fá lykilorðið að hinni bloggsíðunni minni. Sú síða er bara fyrir fjölskyldu og vini. Þessi er fyrir alla! :)

En annars er bara næstum allt gott að frétta héðan. Ég er búin að hafa það gott.  Ætla að gera eitthvað meira við þessa síðu. EKKI HÆTTA AÐ KÍKJA HINGAÐ því þá missiði af miklu.

Hólmfríður <3

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2009 17:00:39 / holmfridur-heppna

skipti um skoðun

nú fer þessi síða í pásu meðan ég ákveð hvort ég eigi að eyða henni.
Pásan verður löng ekki búast við að ég hún verði hætt eftir 3 mánuði.
Sorrý

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2009 18:08:36 / holmfridur-heppna

hæ hæ

Þá er fólkið að undirbúa kvöldmatinn til að setjast á grillið. Við fáum hamborgara í kvöld...
Vil síðan minna fólk á senda mér e-mail eða póst á facebook til að fá lykilorð að nýju bloggsíðunni http://topstjarna.blog.is  ;) 
Annars gengur allt svona upp og ofan hérna hjá mér. Ragnheiður aftur komin á spítalann og svo hef ég um ýmsu að kvarta yfir skólanum. 
En núna er ég bara í nokkuð góðu skapi. Ekki gleyma gestabókinni síðan og svarið könnuninni. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2009 14:59:04 / holmfridur-heppna

halú

er komin með nýja og betri bloggsíðu, http://topstjarna.blog.is :)
Ef fólk þarf lykilorðið má bara senda mér póst á facebook eða netfangið mitt.
Ætla ekkert að hætta með þessa svo allir haldi áfram að fylgjast með þessari líka en þar sem ég ákvað að hafa þá síðu læsta mun ég setja eiginlega allt, líka alls konar myndir af mér og fjölskyldu og vinum og fréttir sem ég set ekki hér.

Ætlaði bara að segja frá nýja blogginu og svo eru tveir nýjir brandarar komnir inn.

Sjáumst!

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagatal
september - 2010
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 4010
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 259 dögum
aðfangadagur
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 7 september
Klukkan
Dagsetning
9. september 2010
Textabox
Ég heiti Hólmfríður og er 13 ára. Endilega kíkið á bloggið mitt en þið verðið að MUNA GESTABÓKINA :D